2. sætið í Skólahreysti og dagskráin í maí

 In Forsíðu frétt, Laugó

Nú er maí mánuður genginn í garð og vonum við að hið íslenska sumarveður fari að láta sjá sig. Stefnan í maí er að vera meira úti og njóta hækkandi sólar. Eins og staðan er núna stefnum við á Lokaball 16. maí og svo ætlum við að enda veturinn 30. maí með grilli, streetball móti og tónlist úti.

Við byrjuðum mánuðinn á að næla í 2. sætið í Skólahreysti og óskum við unglingunum okkar hér í Laugalækjarskóla hjartanlega til hamingju með frábæran árangur.

18. maí fær Laugó svo ásamt Laugalækjarskóla vottun fyrir að vera réttindarfélagsmiðstöð og réttindarskóli og hlökkum við mikið til og segjum ykkur nánar frá því síðar.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt