In Krakkakot

Kæru foreldrar,

Nú styttist í að ég færi mig á annan vettvang og tekur því við af mér ný forstöðukona, Ásta Margrét Elínardóttir. Hún hefur nú þegar tekið við störfum og munum við vinna saman að því að hefja nýtt skólaár. Hún tekur við símanúmerinu sem ég hef notast við og hún mun taka á móti tölvupóstum í netfangið krakkakot@reykjavik.is. Hún mun svo senda ykkur póst þar sem hún kynnir sig frekar.

Það verður erfitt fyrir mig að kveðja börnin ykkar og ykkur þar sem tíminn hér hefur verið frábær og lærdómsríkur og á ég eftir að kíkja við hérna annað slagið til að fylgjast aðeins áfram með þessum yndislegu börnum. Ég er fullviss um að ég skilji við börnin í öruggum höndum Ástu sem og starfsfólksins, sem mörg hver munu halda áfram störfum.

Kærar þakkir fyrir samstarfið undanfarið ár!

 

Bestu kveðjur,

Íris Dögg

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt