Barnamenningarhátíð

 In Forsíðu frétt, Vogasel

Í dag, þriðjudag 25. apríl, verður 4. bekkjar klúbbur Vogasels ásamt hóp úr frístundaheimilinu Dalheimar með opnun á myndlistasýningu í Sólheimabókasafni. Við í Vogaseli vorum að æfa okkur með spreymálun en Dalheimar var að vinna með akrýlmálningu á striga.

Við munum fara með 4. bekk og vera við sýningaropnunina 14-16 en við munum einnig bjóða þeim börnun sem vilja í hinum bekkjunum að kíkja á opnunina. Þar sem verður auðvitað boðið upp á smá hressingu og fínerí.

Sýningin mun svo standa áfram út vikuna og hvetjum við ykkur endilega til að kíkja við og sjá hvað 4. bekkur hefur verið að vinna svona hörðum höndum að.

Kveðja,

Vogasel

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt