Benedikt í öðru sæti á Samfés
Þann 24. mars síðastliðin fór söngkeppnin Samfés fram í Laugardalshöll. Söngkeppnin er hluti af SamFestingnum sem er stærsta unglingaskepptun á Íslandi og er haldin árlega. Rúmlega 3000 áhorfendur lögðu leið sína í Laugardalshöll en keppnin var einnig send út í beinni útsendingu á RÚV.
Félagsmiðstöðvar frá öllum landshornum tóku þátt í þessari flottu keppni. Það var okkar eigin Benedikt Gylfason úr Félagsmiðstöðinni Bústöðum sem hreppti annað sæti í söngkeppninni með lagið Listen eftir söngdívuna Beyoncé. Í fyrsta sæti var Aníta Daðadóttir úr félagsmiðstöðinni Fönix í Kópavogi og í þriðja sæti var Elva Björk Jónsdóttir frá félagsmiðstöðinni Eden í Grundarfirði