Fréttir og tilkynningar

Sigurvegarar Söngkeppni Kringlumýrar

02.02.2012

Helst ber að óska keppendum Söngkeppni Kringlumýrar til hamingju með árangurinn en á föstudaginn var það ljóst að atriði Höllu Hauksdóttur úr Háaleitisskóla skyldi fara áfram á Söngkeppni Samfés, sem verður nú í mars. Alls voru 25 atriði skráð í heildina og til mikils að vinna. Halla naut stuðnings annarra samnemenda sinna, Eyglóar sem lék á selló, Emils sem plokkaði bassann, Lind sem lamdi húðir, og Styrmis, sem smellti fingrum af sinni alkunnu snilld. Atriðið vakti mikla lukku áhorfenda og voru sveitin að vonum ánægð með úrslitin. Aðrir keppendur tóku einnig þátt fyrir hönd Tónabæjar og eiga þau ekki síður hrós skilið fyrir glimrandi frammistöðu.

Á þriðjudaginn síðastliðinn lagði Hákon Bender línurnar fyrir unglingana um hvernig skyldi bera sig að þegar sóst er eftir frægð og frama. Hann er sjálfur vel þekktur menningarfrömuður sem hefur verið að gefa út myndbandsklippur undir eigin nafni. Hann ræddi við unglingana og uppskar mörg hlátrasköllin, enda einstaklega sjarmerandi maður þar á ferð.

Næsta vika verður vægast sagt viðburðarík. Á miðvikudaginn er sameiginlegt ball, Fimman, í Réttarholtsskóla en þar koma saman þær fimm félagsmiðstöðvar sem að starfa undir Kringlumýri, Tónabær, Buskinn, Laugó, Þróttheimar og Bústaðir, sem og frístundaklúbburinn Hofið. Dansleikurinn stendur frá 19.30 til 22.00 og hafa miðarnir á hann nú þegar selst upp í Tónabæ!

 

Á föstudaginn verður svo hið árlega Draugahús Tónabæjar... og nánar um það síðar!




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit