Fréttir og tilkynningar
Uppskrift að kókostoppum | 03.02.2012
Við gleymdum alltaf að setja inn uppskriftina að kókostoppunum sem við bökuðum fyrir jólin en hér kemur hún loksins.
Í bökunarklúbbi í gær voru bakaðar muffins Dverganna 7 og uppskriftina af þeim má finna hér á síðunni í frétt frá 23.september 2011. Verði ykkur að góðu og góða helgi.
Vikan | 26.01.2012
Þetta hefur verið viðburðarík vika í Álftabæ því fyrir utan hefðbundna klúbba vorum við með Þorraveislu í síðdegishressingu á þriðjudaginn og sýndum svo leik Íslands og Spánar. Í gær horfðum við á leik Íslands og Frakklands og í dag er dótadagur og auk þess bökunarklúbbur, Zumbaklúbbur og 3.-4. bekkjarklúbbur. Við minnum svo á að það er lokað á morgun föstudaginn 27. janúar og í dag, fimmtudaginn 26. er síðasti skráningardagur á heila daginn þriðjudaginn 31. janúar.
Búið er að opna fyrir ráðstöfun Frístundakorts vegna dvalargjalda í janúar. | 25.01.2012
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um ráðstöfun á slóðinni http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3697/6079_view-1524/.
Þeir sem ráðstafa Frístundakorti eru vinsamlegast beðnir um að greiða ekki greiðsluseðil fyrr en hann hefur lækkað í bankakerfinu en það tekur 1-2 virka daga frá ráðstöfun.
Ekki verður sendur út nýr seðill með lægri upphæð
Ef þið eigið í erfiðleikum með að fá lykilorð til að skrá ykkur í Rafræna Reykjavík eða að ráðstafa Frístundakortinu þá vinsamlegast snúið ykkur til Símavers Reykjavíkurborgar í síma 411‐1111 eða til þjónustumiðstöðvar í ykkar hverfi.