Fréttir og tilkynningar

  
Vatnsstríð í 3.-4. bekkjarklúbbi mánudaginn 21. maí | 16.05.2012

Á mánudaginn ætla Hildur og Steinar að stjórna vatnsstríði í 3.-4. bekkjarklúbbi. Það er mikilvægt að allir sem ætla að taka þátt í vatnsstríðinu komi með aukaföt með sér á mánudaginn því það má búast við því að rennblotna. Leyfilegt er að koma með eigin vatnsbyssur en þeir sem eiga ekki vatnsbyssur...

  
Dagskráin á heila deginum föstudaginn 18. maí | 16.05.2012

Nú er skráningu lokið á heila daginn í Álftabæ föstudaginn 18. maí. Vonandi fáum við ágætis veður því að eftir morgunnestið stefnum við á að rölta niður á Klambratún og leika okkur þar fram að hádegismat. Svo verður í boði að fara í Tónabæ sem og frjálst val í Álftabæ.

  
Heill dagur í Álftabæ föstudaginn 18. maí | 11.05.2012

Við minnum á að síðasti skráningardagur á heilan dag 18. maí er á mánudaginn 14. maí. Skráningarblöð hafa verið send í tölvupósti en þau má einnig nálgast hjá okkur í Álftabæ. Ef veðrið verður þokkalegt þann 18. þá ætlum við að fara í leiki á Klambratúni fyrir hádegi, annars fáum við að leika okkur ...

 Frístundakortið 
Síðasti dagur til að ráðstafa frístundakorti vegna dvalargjalda í apríl er sunnudagurinn 13. maí | 09.05.2012

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um ráðstöfun á slóðinni http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3697/6079_view-1524/ Þeir sem ráðstafa Frístundakorti eru vinsamlegast beðnir um að greiða ekki greiðsluseðil fyrr en hann hefur lækkað í bankakerfinu en það tekur 1-2 virka daga frá ráðs...

  
Sumardagskrá | 04.05.2012

Dagskráin fyrir sumarið er tilbúin og má finna dagskrá hverrar viku hér vinstra megin á síðunni. Annars erum við komin í mikinn sumarfíling í góða veðrinu og í dag höfðum við útidag og erum öll úti að leika og njóta veðurblíðunnar, yndislegt :-)

  
Rauður dagur á morgun, föstudag | 26.04.2012

Við minnum á að það er rauður dagur hjá okkur á morgun, föstudaginn 27. apríl. Allir að muna að mæta í einhverju rauðu :-)

 Frístundakortið 
Opnað hefur verið fyrir ráðstöfun Frístundakorts vegnar dvalargjalda í apríl | 26.04.2012

Foreldrar barna á frístundaheimilum geta nýtt Frístundakortið til niðurgreiðslu dvalargjalda. Ekki er hægt að ráðstafa allri upphæðinni í einu heldur þarf að ráðstafa styrknum mánaðarlegaeða þar til öll upphæðin hefur verið notuð. Ekki verður sendur út nýr greiðsluseðill með lægri upphæð. Eingön...

  
Myndir frá sumardeginum fyrsta | 24.04.2012

Við vorum að setja inn myndir frá sumardeginum fyrsta í myndaalbúmið. Eins og sjá má á myndunum heppnaðist fjölskylduskemmtunin afar vel og fjölmargir mættu til að fagna sumarkomunni með okkur og borðuðu pylsur, hoppuðu í hoppukastala, keyrðu kassabíl, nutu skemmtiatriða og fengu andlitsmálningu í b...

  
Skráning hafin í sumarstarfið | 23.04.2012

Kæru foreldrar, þá er búið að opna fyrir umsóknir í sumarstarfið. Boðið er upp á 5 vikur fyrir sumarlokun: vikan 11.-15. júní, vikan 18.-22. júní, vikan 25.-29. júní, vikan 2.-6. júlí, vikan 9.-13. júlí. Lokað er frá 16. júlí til 6. ágúst. Svo er opið í tvær vikur fyrir skólabyrjun: vikan 7.-10. ágú...

  
Myndir úr sirkussmiðjunni 17. apríl | 20.04.2012

Það var ekkert smá gaman hjá þeim sem völdu að fara í Sirkussmiðjuna á Barnamenningarhátíðinni á þriðjudaginn. Myndirnar segja meira en mörg orð, kíkið í albúmið. Það var líka rosa stuð á Sumardagsskemmtuninni okkar í gær og það koma myndir í albúmið í næstu viku. Gleðilegt sumar og góða helgi :-)







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit