Góðan dag.
Nú er snjórinn farinn og Glaðheimar eru umvafnir klaka og því ekki hægt að vera úti. Það hafa því verið innidagar í Glaðheimum undanfarið.
Óskilamunirnir eru farnir að safnast upp hjá okkur, við erum komin með þrjá svarta ruslapoka af óskilamunum frá því í haust, við hvetjum ykkur því til að koma og fara í gengum óskilamunina. Við förum með eftirliggjandi óskilamuni frá haustönn 2011 í Rauða krossinn mánudaginn 13.febrúar
Þriðjudaginn 14. febrúar verður heill dagur í Glaðheimum vegna foreldraviðtala í Langholtsskóla. Á heila daga verður að skrá sérstaklega hvort sem að barnið nýtir þjónustuna allan daginn eða eingöngu eftir hádegi. Skráningablöð eru send út með tölvupósti en einnig er hægt að nálgast þau hjá starfsfólki Glaðheima. Skráningablöð þurfa að berast annað hvort með tölvupósti á gladheimar@itr.is eða útprentað til starfsmanna Glaðheima. Af gefnu tilefni viljum við benda foreldrum á að senda ekki börnin sjálf með skráningarblöðin til okkar þar sem þau eiga það til að gleymast eða týnast þannig. Síðasti skiladagur skráningablaða er þriðjudagurinn 7.febrúar. Eftir þann dag verður ekki tekið á móti skráningum.
Á heilum dögum eiga börn að koma með tvö nesti, eitt fyrir morguninn og eitt fyrir eftirmiðdaginn, en Glaðheimar sjá börnunum fyrir heitum mat í hádeginu.
Við minnum foreldra á að ekki er tekið á móti óskráðum börnum.
Kveðja,
Sandra og Snorri