Fréttir og tilkynningar

  
Grill, glens og endalaus hamingja í kvöld | 18.05.2012

Kæru unglingar við viljum sjá sem allra flesta í kvöld því að í kvöld verður síðasta föstudags kvöldopnunin í vetur. Það er því ekki um annað að ræða en að fjölmenna í Þróttheima í kvöld og gæða sér á girnilegum grillmat og gleyma sér í glensi og gaum.

  
Maí - Dagskrá mánaðarins í Þróttheimum | 07.05.2012

Maí mánuður verður á sumarlegum nótum hjá okkur í Þróttheimum. Öll tækifæri sem gefast til þess að nýta góða veðrið verða nýtt. Við sólum okkur á svölunum, förum í kubb og hackysack og margt fleira. En svo auðvitað höldum við okkur inni þegar norðanáttin blæs hressilega á okkur.

  
Íþróttadagur | 30.04.2012

Föstudaginn 4. maí frá 19:00-22:00 verður íþróttadagur Kringlumýrar haldin í Tónabæ. Keppt verður í fótbolta, körfubolta, blindrabolta, borðtennis, billiard og kraftakeppni. Skráning fer fram í Þróttheimum miðvikudaignn 2. maí frá 19:30-22:00.

  
KÆRLEIKAR Í LAUGARDALNUM | 20.04.2012

Kærleiksvikan hófust í gær þegar Útvarp Kærleikur, fm 106,5 fór í loftið en útvarpað var beint frá sumarhátíðinni í Laugardalnum sem haldin var í Þróttheimum.

  
Kærleiksball í Langholtsskóla | 19.04.2012

Miðvikudaginn 25. apríl verður haldið Kærleiksball í Langholtsskóla. Ballið er fyrir unglinga í Langholtsskóla, Vogaskóla og Laugalækjarskóla. Ballið hefst klukkan 19:30 og lýkur klukkan 22:00.

  
Sumardagurinn fyrsti í Laugardalnum | 17.04.2012

Frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar í Laugardalshverfinu hafa skipulagt hátíð sem haldin verður á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl. Hátíðin stendur frá 11:00-14:00 í Félagsmiðstöðinni Þróttheimum/Frístundaheimilinu Glaðheimum, staðsett við Holtaveg 11.

  
Kærleiksvikan 19.-25. apríl | 11.04.2012

Kærleiksvikan hefst í næstu viku. Margt skemmtilegt er á dagskrá eins og Útvarp Kærleikur - fm 106,5, VinaLaugin, Tónleikar og síðast en ekki síst KÆRLEIKSBALLIÐ. Í ár verður ballið haldið í Langholtsskóla.

 Páskabingó 5.-7. bekkjar 
Dymbilvikan í Þróttheimum | 30.03.2012

Þó að krakkarnir séu komnir í páskafrí er enn nóg um að vera í Þróttheimum. Nú í vikunni fyrir páska verður opið mánudag til miðvikudags. Það verður haldið glæsilegt páskabingó fyrir unglinga í 8. 9. og 10. bekk á þriðjudagskvöldið klukkan átta. Einnig verður páskabingó fyrir 5. 6. og 7. bekk á miðv...

  
Árshátíð og Árshátíðardekur | 27.03.2012

Árshátíð unglingastigs Langholtsskóla og Þróttheima verður haldin miðvikudagskvöldið 28. mars. Það verður glæsileg dagskrá sem hefst með hátíðarkvöldverð. Í kvöld (27. mars) ætlum við í Þróttheimum að hita upp fyrir árshátíðina með árshátíðardekri. Í kvöld verður boðið upp á tyrkneskt fótabað og spl...

  
HOUSE OF FEELINGS | 22.03.2012

Já gott fólk það er komið að því. House of Feelings eða hús tilfinningana verður sett upp í Þróttheimum föstudagskvöldið 23. mars 2012. Ótrúlega skemmtilegur viðburður sem enginn má missa af. Komdu og upplifðu hvernig skynfærin upplifa heiminn án sjónar. Þetta verður magnað. Allar upplýsingar má sjá...







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit