Dymbilvika í Dalheimum
Í Dalheimum var í síðustu viku sannkölluð hátíðardagskrá. Á mánudeginum var haldið í Rush trampólíngarð, þar sem við hoppuðum inn í Dymbilviku og gæddum okkur svo á Búlluborgurum. Á þriðjudaginn var farið í sundferð upp í Grafarvog og að henni lokinni voru grillaðar pylsur ofan í mannskapinn. Miðvikudagurinn var svo á rólegu nótunum; bíóferð í Bíó Paradís þar sem við horfðum á myndina Moana.
Ofanrituðu til sönnunar eru hér nokkrar ljósmyndir.
Recent Posts