Félagsmiðstöðvadagurinn í Bústöðum

 In Bústaðir, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára)

Miðvikudaginn 14. nóvember verður Félagsmiðstöðvardagur Samfés haldinn víðs vegar um landið. Á félagsmiðstöðvardaginn er félagsmiðstöðin opinn öllum í hverfinu og gefst foreldrum og öðrum fjölskyldumeðlimum tækifæri til þess að kynnast starfi félagsmiðstöðvarinnar betur.

Í Bústöðum verður félagsmiðstöðvadagurinn tvískiptur. Milli 16:00-18:00 verður opið fyrir 5-7. bekk ásamt fjölskyldum og milli 19-21 verður opið fyrir 8-10. bekk og fjölskyldu.

Boðið verður uppá léttar veitingar, notalega stemmningu og tækifæri til þess að hafa áhrif á starfsemi Bústaða.

 

Við viljum hvetja alla til þess að koma og kynna sér allt það sem Bústaðir hafa uppá að bjóða.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt