Félagsmiðstöðvadagurinn í Tónabæ

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Tónabær

Miðvikudaginn næstkomandi, 1. nóvember verður félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Hlutverk félagsmiðstöðvadagsins er að opna félagsmiðstöðvarnar og kynna það glæsilega starf sem þar fer fram.

Í Tónabæ verður opið hús kl 16:30-18:30, þar sem ungmenni og starfsfólk Tónabæjar kynnir starfið og sýnir hvað það þýðir að vera í félagsmiðstöðinni. Klukkan 18:00 verður svo skrekksatriði Háaleitisskóla sýnt og léttar veitingar í boði.

Við hvetjum alla fjölskylduna að kíkja saman í félagsmiðstöðina og skoða þetta flotta starf sem þar fer fram.

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt