Félagsmiðstöðvadagurinn í Tónabæ 13.nóvember

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Tónabær

Miðvikudaginn 13.nóvember verður opið hús í Félagsmiðstöðinni Tónabæ kl 17:30-19:30, en þá hvetjum unglinga, foreldra, systkini og bara öllum til að kíkja í Tónabæ og kynna sér starfsemina sem þar fer fram. Það verður ýmislegt í boði, svo sem að skreyta piparkökur, fara í pílukast, spila tölvuleiki, það verður spilahorn og ýmislegt fleira, einnig verður kaffi á könnunni og léttar veitingar.

Við hvetjum alla til að koma og kynna sér hvað ungmennin eru að bralla í Tónabæ dag frá degi og kynna sér starfsemina nánar, starfsmenn Tónabæjar verða á staðnum og taka þátt í spilum og öðru og eru til í spjall um félagsmiðstöðvastarfið.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

-Tónabær

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt