Félagsmiðstöðvadagurinn í Bústöðum

 In Bústaðir, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt

Næstkomandi miðvikudag, 1. nóvember, verður haldið upp á  félagsmiðstöðvadaginn hátíðlega í Bústöðum og um landið allt. Hlutverk félagsmiðstöðvadagsins er að opna félagsmiðstöðvarnar og kynna það glæsilega starf sem þar fer fram.

Við bjóðum ungmennum og fjölskyldum þeirra frá 5-10. bekk úr Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla og Réttarholtsskóla, á opið hús hjá okkur frá kl. 19-21.

Á þessu opna húsi förum við í spurningakeppni og leiki, einnig munu starfsfólk og ungmenni kynna starfið sem fer fram í Bústöðum. Svo verða léttar veitingar í boði fyrir gesti og gangandi.

Við viljum hvetja alla fjölskylduna til að koma saman í félagsmiðstöðina og skoða þetta flotta starf sem fer þar fram.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt