Feministafélagið Blær afhendir Stígamótum styrktarpeninginn

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Óflokkað, Þróttheimar

Í nóvember hélt Feministafélagið Blær sem er í félagsmiðstöðinni Þróttheimar utan um góðagerðabingó til styrktar Stígamótum. Þetta var í annað skiptið sem félagið hélt slíkan viðburð en seinast styrktu þau UN WOMEN. Meðlimir félagsins hélt utan um viðburðinn með aðstoð frá starfsmönnum Þróttheima og söfnuðu þau vinningum, sáu um skipulag viðburðarins og voru með vaktir í sjoppunni. Viðburðurinn gekk vel og voru glæsilegir vinningar í boði og safnaði félagið rúmlega 60 þúsund krónum. Nokkur ungmenni og meðlimir félagsins skiluðu inn upphæðinni til Stígamóta og tóku starfsmenn Stígamóta vel á móti þeim og þökkuðu innilega fyrir sig og á feministafélagið hrós skilið fyrir frábæran viðburð.

Feministafélagið Blær er að koma sterkt inn og fengu þau heila kvöldstund til þess að skipuleggja áframhaldandi flottri vinnu og skipulagi. Félagið hefur sett niður stefnu sem þau munu setja fram bráðlega og erum við spennt að sjá hvað Blær mun gera á næstu önn.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt