Frábært Sexuball í Laugó
Árleg hefð hefur skapast að halda svokallað Sexuball þar sem allar sex félagsmiðstöðvar Kringlumýrar koma saman á sameiginlegu balli. Ballið var í ár skipulagt af ungmennaráði hverfisins sem fjáraflar ferð sína á Landsmót Samfés sem fram fór í byrjun skólaárs.
Tæplega 300 unglingar mættu á ballið sem var haldið í Laugalækjarskóla í þetta sinn. Félagsmiðstöðvarnar Laugó, Bústaðir, Buskinn, Tónabær, Þróttheimar og Askja voru hluti af ballinu og eru allar staðsettar í Laugardals-, bústaðar- og háaleitishverfi.
Það var hinn vinsæli dúett ClubDub sem léku fyrir dansi ásamt plötusnúðum úr Laugalækjaskóla. ClubDub slógu heldur betur í gegn og gat ekki nokkur sála í húsinu setið kyrr meðan þeir spiluðu. Ballið fór heilt yfir vel fram og mikil ánægja meðal unglinganna.
Eins og gefur að skilja er mikil umgjörð í kringum böll á þessari stærðargráðu, starfsmenn félagsmiðstöðvanna sáu um gæslu og utanumhald á ballinu. Einnig var gott samstarf við skólana og foreldraröltið sem var öflugt eftir ball.