Frístundalæsi Tinnu og Fatou hlýtur viðurkenningu á nýsköpunarhátíð forseta Íslands!

 In Forsíðu frétt, Óflokkað

Markmið verkefnisins var að skoða hvort tækifæri væru til eflingar máls og læsis á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar. Á grunni rannsóknar var hönnuð og gefin út handbókin Frístundalæsi til stuðnings við starfsfólk frístundaheimila með fjölbreyttum leiðum til að efla læsi barna. Handbókin stendur öllum til boða endurgjaldslaust.

Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir og tekin viðtöl við lestrarsérfræðinga, deildarstjóra frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar og forstöðumenn frístundaheimila. Helstu niðurstöður benda til þess að margskonar tækifæri séu til staðar á frístundaheimilum til eflingar máls og læsis. Færa má rök fyrir því að vettvangurinn sé að mörgu leyti vannýttur til markvissrar eflingar læsis, en gæti verið mikilvægur í Þjóðarátakinu um betra læsi barna.

Handbókin Frístundalæsi leggur til ólíkar nálganir við eflingu máls og læsis fyrir börn sem dvelja á frístundaheimilum. Hún er hugmyndabanki þar sem m.a. er hægt að finna 10 einföld atriði sem hvert frístundaheimili getur framkvæmt, margskonar leiki og verkefni fyrir börn og fræðsluefni fyrir starfsfólk. Þegar er hafin kynning á verkefninu meðal starfsfólks og stjórnenda frístundaheimila í Reykjavíkurborg, og áform eru um að fara út á land einnig. Von höfunda er að handbókin geti nýst starfsfólki frístundaheimila til að efla mál og læsi barna og þannig stuðlað að bættum árangri þeirra.

Verkefnið var unnið af Fatou N’dure Baboudóttur og Tinnu Björk Helgadóttur, nemendum á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, í samstarfi við og með stuðningi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Umsjónarmaður verkefnisins var Margrét S. Björnsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

https://reykjavik.is/sites/default/files/skjol_thjonustulysingar/fristundalaesi.pdf

https://www.facebook.com/fristundalaesi/

Frístundalæsi

 

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt