Frístundastarf fyrir 10-16 ára (f. 2003-2008) í Kringlumýri í sumar.

 In Askja, Buskinn, Bústaðir, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Laugó, Tónabær, Þróttheimar

Frístundamiðstöðin Kringlumýri býður upp á frístundastarf  í sumar fyrir börn sem ljúka 5. – 7. bekk nú í vor. Um er að ræða viku námskeið með áherslu á viss þemu td. útivist og hreyfing, framkoma og tjáning, sjálfstyrking og vináttuvika.

Nauðsynlegt er að skrá sig í hvert námskeið.

Tímabil starfsins er frá 11. júní til 14.ágúst. Lokað í viku 2.8.-9.8.

Námskeiðin fara fram í félagsmiðstöðinni Þróttheimum Holtavegi 11 og Tónabæ Safamýri 28. Námskeiðin eru 3-5 daga. Staðsetning hvers námskeiðs tilgreind við skráningu og námskeiðið hefst þar alla dagana en farið er í ferðir út um hvippinn og hvappinn.

Forráðamönnum er bent á að ekki er um vistun að ræða. Mæting á námskeið er á ábyrgð forráðamanna. Einnig er mikilvægt að börn komi klædd eftir veðri, með þann útbúnað sem er tilgreindur við smiðjuna ásamt hollu nesti og vatnsbrúsa.

Nánari dagskrá og verð koma hér inn á næstu dögum og skráningar hefjast 15. maí kl. 10 – með fyrirvara um breytingar við óviðráðlegum ástæðum. 

Skráning nauðsynleg vegna takmörkunar á hópastærð.  Skilmálar á vef Reykjavíkurborgar : https://reykjavik.is/sites/default/files/greidsluskilmalar_i_sumarstarfi_sfs_2017.pdf

Athugið að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarf á vegum SFS.

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið á frístundamiðstöðvar SFS  og fengið aðstoð við skráningu. Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf í gegnum síma. Starfsfólk frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411-1111) getur þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.

Nánari upplýsingar:

Frístundamiðstöðin Kringlumýri

Sími: 411 5400

Netföng umsjónarmanna:

sunneva.olafsdottir@reykajvik.is

vigfus.karl.steinsson@reykjavik.is

olafur.thor.jonsson @reykjavik.is

ivar.orri.aronsson@reykjavik.is

 

Sumaropnanir í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára (fædd 2003-2005)

Í sumar bjóða félagsmiðstöðvar Kringlumýrar (Buskinn, Bústaðir, Laugó,Tónabær og Þróttheimar) upp á opnanir á tveimur stöðum í Félagsmiðstöðinni Laugó Leirulæk 2 og Tónabæ Safamýri 28 frá 3.júní til 15. ágúst. Seinniparts og kvöldopnanir 3 kvöld í viku mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Lokað verður 2.8.-9.8. báðir dagar meðtaldir. Síðasta föstudagsopnun 26.júlí.

Opnunartímar:
Mánudagar                                                                             kl.17:00 – 19:00 og 19:30-22:30
Miðvikudagar                                                                         kl.17:00 – 19:00 og 19:30-22:30
Föstudagarnir  7.júní – 26.júlí                                              kl.17:00 – 19:00 og 19:30-22:30

Allir viðburðir verða auglýstir á facebook síðum félagsmiðstöðva, instagram og á Snapchat. Nánari upplýsingar verða settar inn þegar nær dregur að sumri.

Ef einhverjar spurningar vakna leitið til Frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri 411-5400,  á heimasíðu Kringlumýrar (www.kringlumyri.is) og á www.fristund.is

 

olafur.thor.jonsson @reykjavik.is

ivar.orri.aronsson@reykjavik.is

hildur.thora.sigurdardottir@reykjavik.is

kristjan.ari.halldorsson@reykjavik.is

aegir.freyr.birgisson@reykjavik.is

helga.lind.mar1@reykjavik.is

 

 

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt