Gleðilegan félagsmiðstöðvadag!
Í dag er árlegi félagsmiðstöðvadagurinn og höldum við hann hátíðlegan í Buskanum frá kl. 16 – 18 í dag!
Við bjóðum börn og unglinga, foreldra, systkini, ömmur og afa og alla hina sérstaklega velkomin í Buskann í dag til að fagna þessum degi með okkur. Börn og unglingar hafa undirbúið atriði til að sýna fyrir gesti, boðið verður upp á Bingó sem hefst kl. 17 og einnig verður hægt að taka þátt í annarri dagskrá Buskans, þar á meðal hinu sívinsæla spili Varúlf.
Starfsfólk Buskans hlakkar til að fá sem flesta í heimsókn í dag og kynna fyrir þeim starf Buskans og það sem við stöndum fyrir.
Til hamingju með daginn!
Recent Posts