Gleðilegt nýtt ár
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir árið sem var að líða!
Nú ætti allt að vera komið á ról og detta í rútínu, skólinn byrjaður og frístundin. Íþróttarútan hóf göngu sína á ný í vikunni og við erum farin að senda á æfingar eins og vanalega. Við minnum á að senda okkur tölvupóst á veffangið laugarsel@reykjavik.is ef æfingar eða tímasetningar hafa breyst.
Heilu dagarnir okkar um jólin gengu rosalega vel og var farið meðal annars í bíó, á skauta, í íshelli, í sund og fleira skemmtilegt. Næstu heilu dagar eru í mars og byrjar skráningin á þá daga í febrúar, að venju verður sendur tölvupóstur varðandi skráninguna.
Recent Posts