Haustið fer af stað

 In Frístundaheimili 6 - 9 ára, Laugarsel

Nú eru öll börn sem sótt hafa um komin í Laugarsel og ráðningar langt á veg komnar, þó vantar nokkra starfsmenn enn til að koma starfseminni á fullt og hefja smiðjur og klúbbastarf.

Starfsfólkið okkar er yndislegt og fjölbreytt með ýmis áhugamál sem nýtast vel í Laugarseli.

Við minnum á upplýsingasíðuna (um Laugarsel) okkar, þar eru öll símanúmer, myndir af starfsfólki, matseðill mánaðarins og frístundadagatalið, en þar sjáiði hvaða dagar eru heilir dagar í Laugarseli. Heilir dagar eru dagar þar sem er lokað í skólanum en opið í Laugarseli og starfsemi allan daginn. Þeir eru merktir gulir á frístundadagatalinu.

Við hvetjum ykkur að skoða nýja reglugerð varðandi undanþágu frá greiðslu gjalda fyrir dvöl á frístundaheimili vegna barna sem eru að hefja skólagöngu á Íslandi.

Annars minnum við á bekkjarsímana, 1.bekkur 664-7675 og 2.bekkur 664-7671 og vefpóstinn okkar laugarsel@reykjavik.is.

Við þökkum fyrir ánægjulega byrjun á haustinu, vinsemd og skilning.

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt