Maí dagskrár Þróttheima!

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Þróttheimar

Nú fer skólaárinu að ljúka og við í Þróttheimum höfum í samráði við börnin og unglingana sem við erum að þjónusta sett saman dagskrár fyrir maí. Við munum reyna að vera mikið úti þegar það er hægt og njóta sólarinnar þegar hún lætur sjá sig. Við munum ekki síður hafa það gott innandyra í nýuppgerðum sal félagsmiðstöðvarinnar og eldhúsi. Við fögnum því að þessar breytingar eru yfirstaðnar og hlökkum til þessa að húsið fá viðhald að utan í sumar. Í lok maí ætla Þróttheimar og Buskinn að slútta vetrarstarfinu með stæl og bjóða nemendur skólanna til veislu sem auglýst verður síðar. Við viljum minna á að  dagskrá félagsmiðstöðvarinnar er gjaldfrjáls og bjóðum við geglulega upp á eitthvað matarkyns.

Dagskrár miðstig er að finna hér.

Sunneva, aðstoðarforstöðukona Þróttheima, verður því miður ekki með okkur það sem eftir er af vetri. Hún er farin í fæðingarorlof við óskum henni mestu velgengni í móðurhlutverkinu og bíðum spennt eftir að hún koma aftur.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt