Meistaraveggur Neðstalands
Í dag var heill dagur í Neðstalandi. Af því tilefni ákváðum við að setja af stað Meistaraveggskeppni í boðhlaupi. Börnunum var skipt niður í hópa eftir litum og keppt var í hinum ýmsu krefjandi boðhlaupsgreinum. Skapaðist mikil spenna og eftirvænting. Klappliðið stóð fyrir sínu og hvatti liðin áfram.
Úr varð að bláa liðið sigraði með glæsibrag. Þau eru komin upp á Meistaravegginn sem er staðsettur í hjartarými Neðstalands.
Við þökkum öllum fyrir þátttökuna 🙂
Recent Posts