Nemendur í 5.bekk heimsóttu Þróttheima

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Óflokkað, Þróttheimar

Á hverju hausti bjóða Þróttheimar nemendur í 5.bekk í Langholtsskóla velkomna í stutta heimsókn í félagsmiðstöðina. Á þriðjudaginn og fimmtudaginn litu við í félagsmiðstöðinni 80 börn sem nú geta sótt miðstigsstarf Þróttheima. Árgangurinn er gríðarlega fjölmennur og vonum við að sem flestir hafi tíma til í að líta við hjá okkur og taka þátt í fjölbreyttu og faglegu starfi félagsmiðstöðvarinnar.

Við bjóðum þennan nýja árgang innilega velkomin í starfið og hlökkum til að kynnast þeim á komandi vetri.

Þróttheimar eru opnir fyrir 5.bekk á eftirfarandi dögum

Mánudaga 14:00-15:30

Miðvikudaga 14:00-15:30

Föstudaga 14:30-16:00 (6.bekkur er líka með)

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt