Ný aðstoðarforstöðukona í Glaðheimum

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Glaðheimar

Um leið og við þökkum Sóley fyrir frábært samstarf síðastliðin 5 ár þá bjóðum við núna velkomna til starfa í Glaðheimum Hafdísi Oddgeirsdóttir. Hafdís hefur starfað á frístundaheimilinu Krakkakoti við Háaleitisskóla síðastliðin þrjú ár ásamt því að hafa klárað B.ed. í grunnskólakennarafræðum með áherslu á Íslensku. Hafdís er fædd og uppalin í miðbæ Reykjavíkur og hefur starfað við umönnun í hinum ýmsu störfum frá því að hún var 19 ára. Hún kemur inn í starfsemi Glaðheima með miklum krafti og ætlar að leggja áherslu á barnalýðræði og skipulagt klúbbastarf.  Við hlökkum til að kynnast Hafdísi betur og njóta starfskrafta og samveru hennar næstu árin.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt