Ný tómstundaherbergi
Við í Guluhlíð höfum tekið í notkun tvö ný tómstundaherbergi. Bæði herbergin eru staðsett í Rauðahúsinu okkar og hafa börnin verið mjög ánægð með nýju viðbótina.
Annað herbergið er tónlistarherbergi þar sem til staðar eru allskyns hljóðfæri. Þar eru fullt af trommum, hristum, sitjandi tromma, gítar og margt fleira. Börnin njóta þess að geta skapað hljóð og tónlist á skapandi hátt.
Hitt herbergið er kósýherbergi sem hefur að geyma fullt af böngsum og púðum þar sem börnin nýta sér kósýstemningu. Markmiðið er að börnin hafi stað þar sem þau geti slappað af og tekið því rólega.
Bæði herbergin hafa notið mikilla vinsælda meðal barnanna og hafa verið í mikilli notkun síðan þau voru opnuð.