Nýtt listaverk á lóð Glaðheima
Við í Glaðheimum erum í skýjunum með nýtt listaverk sem við vorum svo heppin að fá að gjöf frá foreldrum barna í Glaðheimum. Það var yndislegur faðir sem kom á tal við okkur og óskaði eftir að fá að skreyta hjólabrettarampinn fyrir okkur. Við tókum auðvita vel í þessa ósk og erum honum ótrúlega þakklát fyrir að gefa okkur tíma sinn og hæfileika. Hann fékk svo annan föður úr hópnum með sér í lið og úr varð þetta frábæra listaverk sem má sjá hérna að ofan. Börnin voru auðvita fljót að sjá breytinguna og eru ótrúlega ánægð með útkomuna. Takk kærlega fyrir okkur frá starfsfólki Glaðheima og börnunum!
Recent Posts