Ofurhetjur Þróttheima
Ofurhetju vika
Vikuna 30. september til 6. október var þemavika í Þróttheimum fyrir miðstig. Þemað þessa vikuna var ofurhetjur og unnum við ýmis verkefni út frá því.
Nemendur miðstigs gerðu gifs-grímur með aðstoð vina í félagsmiðstöðinni og máluðu grímuna í allskonar munstri sem tengdist ofurhetjunni þeirra. Einnig skrifuðu sumur lýsingu á sinni ofurhetju og hvaða krafta hún hafð að geyma ásamt því að búa til teiknimyndasögu um hetjuna. Krakkarnir tóku virkan þátt í þemanu og voru ánægð í heildina með vikuna.
Næsta þemavika verður í lok nóvember, vikuna 18-22. nóvember og verður hún auglýs síðar.
Recent Posts