Samstarfsyfirlýsing um Heilsueflandi Laugardal, Háaleiti og Bústaði.
Framkvæmdastjóri Kringlumýrar skrifaði undir samstarfsyfirlýsing um heilsueflandi Laugardal, Háaleiti og Bústaði fyrir hönd frístundastarfsins. Þar með hefur Kringlumýri og starfsstaðir hennar skuldbundið sig að bjóða upp á heilsueflandi frístundastarf á öllum starfsstöðum Kringlumýrar og leggja sitt af mörkum í að heilsuefla nærsamfélagið í samstarfi við aðrar stofnanir og félagasamtök í hverfinu er varðar næringu, hreyfingu, líðan og lífsstíl. Sérstök áhersla verður lögð á líðan veturinn 2017-2018.
Nú þegar eru nokkur verkefni farin í gang á starfsstöðum Kringlumýrar og mun þeim fjölga eftir því sem líður á veturinn.
Recent Posts