Þróttheimar í febrúar
Við höldum full tilhlökkunar inn í nýjan mánuð. Febrúar verður viðburðaríkur í Þróttheimum og ber þar helst að nefna skíðaferð félagsmiðstöðvarinnar sem er helgina 21-23. febrúar. Við förum með fjölmennan hóp í þetta skiptið en alls eru 65 unglingar að koma með okkur til Akureyrar á skíði og bretti.
Í febrúar er einnig söngkeppni Kringlumýrar þar sem sigurvegarar keppa á sviði í Laugardalshöllinni á söngkeppni Samfés í mars. Þróttheimar eiga eitt atriði þetta árið og ætla tvær stelpur úr 10.bekk að taka þátt fyrir okkar hönd í lok vikunnar.
Meðal annarra viðburða í félagsmiðstöðinni má nefna poolmót, sundferð, dragkvöld ásamt fleiru spennand. Þessa önnina höfum við fært dagopnanir upp í Langholtsskóla og erum alla fimmtudaga í B23 með opnun eftir skóla. Þetta var ósk nemenda að hafa dagopnanir nær skólanum og hefur mæting aukist og ánægjulegt að geta komið til móts við þarfir og óskir þeirra.