Unglingastarf Þróttheima hafið

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Þróttheimar

Unglingastarf Þróttheima er hafið að fullum krafti og hefur nemendaráð Þróttheima og Langholtsskóla gert dagskrá fyrir kvöldopnanir félagsmiðstöðvarinnar í september. Við höld spennt inn í veturinn og hlökkum til að framkvæma með nemendaráðinu alla þær flottu hugmyndir sem nú þegar eru komnar í startholurnar. Dagopnanir munu hefjast hægt og rólega og gerum við ráð fyrir að nýta okkur eina af stofum skólans til að bjóða upp á dagopnanir einu sinni í viku ásamt því að halda fundi sem nefndum og ráðum.

Nemendaráðið ætlar að halda úti podcasti í vetur og vonandi verður það aðgengilegt bæði samnemendum og fleirum. Nokkrar nefndir hafa tekið til starfa undir nemendaráðinu og má þar nefna, dj ráð, ball ráð, femínistafélag og fleira.

Við höldum full tilhlökkunar inn í veturinn

Starfsfólk Þróttheima

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt