Útivera með hækkandi sól
Loksins! Loksins er veðrið aðeins farið að lægja og sólin farin að láta sjá sig! Fullkomin tímasetning því í þessari viku hefur Samuel verið hjá okkur með alls kyns afþreyingu í útiveru.
Á mánudag var hann með kassaborg í matsal, þar sem krakkarnir gátu búið til alls konar úr kössum, hús, virki og fleira.
Á þriðjudag var snjóhúsagerð fyrir framan Laugarsel sem krökkunum fannst mjög gaman!
Á miðvikudag var angry birds, en það er stór teygjubyssa þar sem krakkarnir eru að skjóta grjónaboltum og reyna að hitta skotmark.
Á fimmtudag var skylmó í sólinni, en krökkunum fannst rosa gaman líka að sóla sig fyrir framan skólann.
Í dag verður útieldun þar sem verða grillaðir sykurpúðar.
Hér má sjá myndir frá vikunni