Viðburðarríkur desember!
Desember var aldeilis viðburðarríkur hérna hjá okkur í Laugó. Dagskráin var að venju þétt og mikið líf og fjör á opnunum.
Tveir viðburðir stóðu þó upp úr: Jólaball Laugalækjarskóla og góðgerðarsöfnun nemenda fyrir barna og unglinga geðdeild landspítalans, BUGL. Þar stóð réttindaráð skólans sig vel, en það skipulagði kakósölu með aðstoð Laugó fyrir utan Laugardalslaugina. Snillingar í 7. bekk stóðu vaktina og tóku gestir sundlaugarinnar vel í söluna.
Jólaballið var vel sótt, enda ekki furða þar sem tveir ástsælustu ungrapparar þjóðarinnar tróðu upp, þeir JóiPé og Króli! Áhugasamir geta fundið böns af myndum á facebook síðu Laugó.
Recent Posts