Öskudagur í Þróttheimum
Á morgun, miðvikudaginn 26. febrúar, ætla Þróttheimar að halda Öskudagsskemmtun fyrir miðstig félagsmiðstöðvarinnar. Við ætlum að slá köttinn úr tunnunni, fara í leiki og hafa gaman saman. Dagskráin er frá 14:00-15:00 og vonumst við til að sem flestir geti stoppað við hjá okkur á leið sinni um hverfið. Gleðin verður í félagsmiðstöðinni við Holtaveg 11.
Recent Posts