Haustbyrjun í Dalheimum
Haustönnin er byrjuð og því mikil gleði hjá okkur í Dalheimum. Á sama tíma og við bjóðum nýjan þriðja bekk velkominn þykir okkur sérstaklega skemmtilegt að sjá marga úr 4. bekk aftur – en þekkt er að aðsókn 4. bekkjar er töluvert lægri en í 1-3 bekk. Við hvetjum ykkur að fylgjast með starfi Dalheima á facebook og á þessari síðu en þar má einnig finna allar helstu upplýsingar um okkur. Því miður hefur enn ekki tekist að ráða í allar stöður. Við erum þó með mörg járn í eldinum og vonumst til að geta byrjað að taka inn af biðlistum innan skamms.
Dalheimar leggja áherslu á að börn og foreldrar eigi hlut í okkar starfi. Börnin eru hvött til þess að setja hugmyndir í hugmyndakassa og reglulega eru haldnir barnaráðsfundir þar sem þátttakendur ræða hugmyndirnar og flokka þær niður í framkvæmanlgegar-, óframkvæmanlegar- og grínhugmyndir. Starfsfólk reynir eftir bestu getu að framkvæma framkvæmanlegu hugmyndirnar. Foreldrar eru hvattir til að deila sínum hugmyndum með forstöðumönnum.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Dalheima