Réttindaskólar Unicef

Home / Réttindaskólar Unicef

Á árunum 2016-2017 var Réttindaskóli UNICEF innleiddur á  frístundaheimilunum Laugarseli og Dalheimum ásamt félagsmiðstöðinni Laugó í samstarfi við Laugarnes- og Laugalækjarskóla.

Réttindaskólinn er vinnulíkan fyrir skóla- og frístundastarf sem tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna og miðar að því að auka virðingu, vernd og mannréttindi. Skólar og frístundamiðstöðvar sem vinna eftir líkaninu leggja sáttmálann til grundvallar í starfi sínu; skipulagningu, stefnumótun og starfsháttum. Áhersla er lögð á að skapa umhverfi sem byggist á þátttöku, jafnrétti og virðingu. Markmið réttindaskólans er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútíma samfélagi. Smám saman verður þetta verklag yfirfært á allt frístundastarf í  hverfinu.

Réttindaskóli Unicef er í stöðugrí sókn í skólastarfi víðsvegar um heiminn og hafa fleiri en 4000 skólar verið viðurkenndir af Unicef. Líkanið er hinsvegar í fyrsta skipti yfirfært á vettvang frítímans á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum Kringlumýrar.

Kringlumýri hefur lagt áherslu á að forstöðumenn starfsstaða þrói verkefnið inni á sínum starfsstöðum og í byrjun var einnig ráðinn verkefnastjóri tímabundið. Við hvetjum alla áhugasama til þess að hafa samband og hjálpa okkur að dreifa boðskap verkefnisins. Forstöðumenn eru sérstaklega spenntir fyrir samstarfi við íbúa og stofnanir í nærumhverfinu.

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt