Húsnæði Glaðheima

Fjölleikahús er  aðalleikrýmið okkar í Glaðheimum en þar geta börnin leikið með flest allt það dót sem við eigum. Þar er til dæmis Lego, barbie, dúkkur, búningar, kubbar, bílar, búðarleikur og kartöfluhausar svo eitthvað sé nefnt. Leikrýminu er skipt upp í nokkur hólf og börnin geta því gengið að því dóti sem þau vilja leika með þar sem það á heima.

Hjarta er miðjurýmið í Glaðheimum en þar er hægt að lesa bækur, lita og leika sér með tússtöfluna okkar.  Við viljum helst halda Hjartarýminu sem rólegu rými en gleðin á það til að taka völd og þá færist fjör í leikana.

Listasmiðjan er skapandi rýmið okkar og við erum svo heppin að njóta þar þjónustu skapandi starfsmanna eins og Izabellu, Egils og Katarzynu sem hafa borið þungan af listasmiðjustarfinu okkar síðustu ár.  Þar fá börnin annaðhvort að kljást við skapandi verkefni sem starfsmennirnir hafa útbúið eða hafa frjálsar hendur með ákveðnum efnivið.  Í listasmiðjunni verða ótrúlegustu hlutir til og því kemur það ekki nokkrum á óvart að þar er nánast alltaf öll sæti full.

Partýhúsið er fjör herbergið okkar.  Þar geta börnin fengið að fara í fótbolta, skotbolta eða aðra boltaleiki.  Þar er líka hægt að fara í stopp-dans, setu dans eða aðra dans tengda leiki.  Börnin kusu sjálf um nafnið á Partýhúsið en allar tillögurnar komu frá börnunum á barnaráðsfundi.

Betri stofa og Studio

Betri stofan er rólega rýmið sem við nýtum fyrir þau börn sem þurfa að geta komist í ró og næði við og við. Þar er einnig gott rými fyrir klúbbastarf eins og Hellaleikinn og einstaka sinnum hafa börnin nýtt rýmið til þess að búa til leikrit eða önnur skemmtileg verkefni.

 

Studio-ið er á efri hæðinni og er rými sem við fáum lánað frá Þróttheimum til þess að geta boðið börnunum uppá verkefni eins og Glaðheimapopp. Þar eru aldrei fleiri en 5-7 börn í einu.

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt