Dýragangan 2019
Miðvikudaginn 22.maí var haldin fyrsta Dýragangan á Íslandi. Þetta verkefni var unnið í samstarfi með Landvernd, Fuglavernd, Reykjavíkurborg, Grasagarðinum, Húsdýragarðinum, leikskólanum Hof og frístundarheimilunum Laugarsel og Dalheimar.
Tilefnið af göngunni var 50 ára afmæli samtakanna Landverndar og á þeim tímamótum langaði Landvernd að vekja athygli á málefnum hafsins tengdum loftslagsbreytingum og neyslu, svo sem plastmengun í hafi, hnignun lífbreytileika, súrnun sjávar og dýrum á válista. Ætlunin var að vekja athygli á málefnunum á jákvæðan og skemmtilegan hátt með fræðslu, smiðjum og sem endar á skrúðgöngu sem er haldin til þess að vekja athygli á málefninu með tilliti til aldurs. Dýragangan er að erlendri fyrirmynd í gegnum Roots and Shoots verkefni Jane Goodall en svipaðar skrúðgöngur hafa verið haldnar í Argentínu og Taiwan undir nafninu Animal Parade.
Að taka þátt í göngunni tónaði vel við það sem börnin ræddu á barnaþinginu í Laugarnesskóla 20.nóvember síðast liðinn, en þar kom fram þeirra áhyggjur af plastmengun og af sjávarlífinu.
Hér má sjá myndir frá smiðjunum, fræðslunni og göngunni.