Félagsmiðstöðvadagurinn 2018
Miðvikudaginn 14. nóvember bjóða félagsmiðstöðvar og ungmennahús ykkur í heimsókn. Þetta er frábært tækifæri til þess að kynna sér starfið og auka samveru með unga fólkinu. Þáttaka í skipulögðu starfi félagsmiðstöðva og ungmannahúsa í öruggu umhverfi með fagfólki hefur mikið forvarnargildi og eykur verulega líkur á því að ungt fólk kjósi heilbrigðan lífsstíl og forðist áhættuhegðun.
Í öskju er opið hús frá kl 16-18 og í boði eru fjölbreyttar smiðjur fyrir börnin og foreldra þeirra. Við hvetjum alla foreldra til þess að mæta og prufa að taka þátt í starfinu okkar.
Recent Posts