Föstudagsfréttir 25.-29. mars
Jæja, þá er runninn upp nýr föstudagur og tími til kominn að líta um öxl og rifja upp nokkra af helstu atburðum vikunnar. Veðrið hefur leikið við okkur í dalnum með snjókomu og sólskini til skiptis og við nýttum okkur veðurblíðuna til að föndra snjókarla og snjóhús hér á lóðinni. Tónlistaklúbbur Baldurs var á sínum stað og við stefnum á að setja lögin úr klúbbnum hér inn á heimasíðuna í næstu viku. Í bökunarklúbbi bjuggu krakkarnir til kókosbollur og bananamöffins og Varvara fór með ljósmyndaklúbbinn í Húsdýragarðinn til að taka myndir af dýrunum. Þessu til sönnunar eru hér nokkrar myndir:
Recent Posts