Framhaldið eftir lokavikuna
Hæhæ.
Nú er lokavikan í sumarstarfinu okkar að taka enda, við erum búin að vera bralla ýmislegt eins og fara á leikvelli, klambratún og fá hoppukastala til okkar. Á fimmtudaginn verður síðan smá ”slútt” og gerum við eitthvað skemmtilegt hérna í Vogaseli.
Á föstudaginn og mánudaginn er síðan lokað hjá okkur því við erum með starfsdaga. Vetrarstarfið byrjar svo á fullu á þriðjudaginn 24. ágúst þar sem 2-4 bekkur koma eftir skóla. Á miðvikudag 25. ágúst koma síðan 1 bekkingar í fyrsta skiptið í Vogasel eftir skóla 🙂
Hlökkum mikið til að byrja vetrarstarfið með ykkur og börnunum ykkar!
Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að senda okkur línu á vogasel@rvkfri.is
Með bestu kveðju,
Vogasel