Laugó í þriðja sæti Söngkeppni Samfés
Um helgina fer fram hin árlega Samfestingshátíð í Laugardalshöllinni. Hápunkturinn er á föstudagskvöldinu þar sem allar félagsmiðstöðvar landsins koma saman á risastóru balli þar sem vinsælasta tónlistarfólk landsins kemur fram.
Fyrr í dag fór svo fram söngkeppni Samfés þar sem atriði af öllum landshlutum keppa. Það er mál manna að keppnin í ár hafi verið gríðarlega sterk og hæfileikabúntin á færibandi. Fulltrúar Kringlumýri voru þær Halldóra Björg Haraldsdóttir úr Þróttheimum og Anna Fanney Kristinsdóttir úr Laugó.
Að lokum fór svo að Anna Fanney úr félagsmiðstöðinni Laugó hreppti þriðja sæti keppninnar í ár. Hún söng lagið Wake up alone með Amy Winehouse óaðfinnanlega fyrir framan fulla Laugardalshöll. Algjörlega frábær árangur hjá Önnu Fanney, erum við í Laugó rígmontinn með þessa frammistöðu og okkar fulltrúa. Gaman verður að sjá þessa upprennandi söngkonu í framtíðinni.
Keppnin var í beinni útsendingu á RÚV en Ungrúv var á staðnum og tók viðtöl. Því má búast við frekari umfjöllun um keppnina á næstu dögum.