Lok sumars 2020

 In Laugarsel

Síðustu tvær vikur sumarstarfsins liðu mjög hratt og er skólinn á næsta leyti.

Laugarsel hefst fyrir 1.bekk miðvikudaginn 26.ágúst, en það verður aðeins seinna fyrir 2.bekk (fylgist með póstum frá okkur).

Annars var gaman síðustu vikurnar og fengum við alls konar veður og vind, sem betur fer mikla sól líka.

Það var meðal annars farið í Matthíasarborg, sund, Húsdýragarðinn, leikvelli í kring og svo margt fleira. Krakkar fæddir 2012 fengu að fara á vegum Listasafns Reykjavíkur til Viðey að taka þátt í verkefni þar. Við bökuðum og föndruðum og gerðum margt og mikið!

Laugarsel þakkar öllum þeim sem mættu á sumarnámskeiðin okkar samveruna!

Einnig þakkar Laugarsel verðandi 3.bekk samveruna sl. tvö ár og gangi þeim vel í framtíðinni.

Hér má sjá nokkrar myndir frá sl. tvem vikum.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt