Mánudagsfréttir Dalheima
Í síðustu viku fór að fjara undan mesta byrjunarálaginu og lífið í Dalheimum hrökk í léttari gír. Það var gott að sjá að margir sem voru í þriðja bekk í fyrra komu til baka sem frjórðubekkingar, ýmist ásamt systkynum eða vinum.
Nýr starfsmaður byrjaði hjá okkur í síðustu viku. Hann heitir Árni og hefur starfað á hjúkrunarheimilum og sem plötusnúður. Okkur líst mjög vel á hann. Annars byrjuðu Gunnar og Malin í Dalheimum í lok ágúst, þannig að starfshópurinn samanstendur af einstaklega hressu og duglegu fólki þetta skólaárið.
Hvað er annars að frétta? Við krakkarnir tókum upp kartöflurnar sem við gróðursettum í maí og í þessari viku ætlum við að baka þær með thimian og hvítlauk, því flestum finnst bakaðar kartöflur góðar, sérskaklega ef þær eru lífrænt ræknaðar í okkar eigin garði. Veðrið var afar gott og við gátum nýtt sólardagana í skemmtilega útiveru, t.d. héldum við listarsmiðju úti á pallinum bakvið húsið og settum trampólín á grasblettinn. Krakkarnir föndruðu ýmislegt í listasmiðju í síðustu viku, þau máluðu á viðarplötur, bjuggu til zombie búninga og byrjuðu á risaeðluföndri. Auk þess buðum við upp á myndasöguklúbb, spilaklúbb, naglalakksklúbb, perluklúbb, útileikjaklúbb og margt fleira.