Réttindafrístund Unicef – Laugó og Dalheimar

 In Draumahverfið, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Óflokkað

Laugalækjarskóli, félagsmiðstöðin Laugó og frístundaheimilið Dalheimar fögnuðu í dag viðurkenningu UNICEF sem Réttindaskóli og Réttindafrístund.

 

Starfsmenn Laugó, fulltrúar Unicef ásamt borgarstjóra

Starfsmenn og börn frá Dalheimum

 

Allt skóla – og frístundastarf barna og unglinga á þessum starfssstöðum byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þátttöku barna, jafnrétti, lýðræði og virðingu. Hátíðardagskrá var í Laugalækjarskóla þegar þessari viðurkenningu UNICEF var fagnað en hún er árangur af markvissu réttindastarfi meðal nemenda og starfsfólks.

Réttindaskólar UNICEF byggja á hugmyndafræði sem hefur verið innleidd í mörg þúsund skólum út um allan heim með góðum árangri. Réttindaskólar vinna markvisst að því að börn, kennarar, foreldrar og aðrir sem tengjast skóla- og frístundastarfinu þekki réttindi barna og beri virðingu fyrir þeim. Með þessari viðurkenningu UNICEF varð Laugó fyrsta Réttindafélagsmiðstöðin í heiminum.

Dagur B. Eggertsson ávarpaði samkomuna í morgun, sagðist stoltur af réttindastarfinu og óskaði börnum og starfsfólk til hamingju með áfangann. Þá sungu nemendur og léku á hljóðfæri.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt