Skíðaferð Kringlumýrar 2018
Í ár verður farið í sameiginlega skíðaferð til Akureyrar 6. – 8.apríl, allar fimm félagsmiðstöðvar á vegum Kringlumýrar fara saman. Takmarkaður fjöldi er í ferðina og hver félagsmiðstöð fær ákveðinn fjölda af sætum og því verður skráningin fyrstur kemur fyrstur fær. Skráning í ferðina hefst í dag, þriðjudaginn 20.febrúar kl.15.00 hérna er linkurinn sem hægt er að skrá sig í ferðina: hér
Kostnaður í ferðina er 20.000 krónur en það er allt innifalið í verði fyrir utan ef einstaklingar þurfa að leigja skíðabúnað, þá þarf að borga það sér. Staðfestingargjald er 5000 krónur og þarf að borga það fyrir 2.mars, athugið að ekki er hægt að fá staðfestingagjald endurgreitt sé hætt við að fara í ferðina. Hægt er að taka þátt í fjáröflun en það er valfrjálst.