Skrekkur, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur

 In Óflokkað

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2022

Skrekkur, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur

Verkefni sem byggir á virkri þátttöku nemenda, sköpun, samstarfi og sjálfstyrkingu

Skrekkur er árleg hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur á unglingastigi í Reykjavík. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda, reynslunám og skapandi starf. Með þátttöku í Skrekk er unglingum boðið upp á skóla- og frístundastarf sem hefur ótvírætt uppeldis- og menntunargildi.

Skrekkur byggist á því að unglingarnir þróa sviðsverk frá hugmynd til sviðsetningar. Markmiðið er að efla sköpunargáfu, að unglingarnir læri að hugsa út fyrir rammann, læri verklag, þjálfist í markvissu hópstarfi, styrki sjálfsmynd sína, efli félagsstarf og samstarf á milli skóla og félagsmiðstöðva. Skrekkur er skipulagður með hliðsjón af Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, í samstarfi skóla, félagsmiðstöðva og skrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, ásamt RÚV og Borgarleikhúsinu.

Með þátttöku í Skrekk fá ólíkir hæfileikar unglinganna að njóta sín. Sviðsetningin býður m.a. upp á dans, leik, söng, tónlist, leikstjórn, ljós, hljóð, sviðsmynd, leikmuni, förðun, hár, búninga, ljósmyndun. Unglingarnir hafa nýtt þetta tækifæri til að koma mikilvægum skilaboðum á framfæri. Atriðin endurspegla jafnan viðfangsefni sem eru í deiglunni í lífi unglinga og í heiminum hverju sinni.

Undirbúningsferlið felur þannig í sér mikla áskorun varðandi samskipti innan hópanna, að takast á við mismunandi sýn. Þau þurfa að vera skapandi og lausnamiðuð og finna leiðir til að koma fullunnu verki á svið. Í þessu felst mikið lærdómsferli.

Verkefnið hefur þróast í áranna rás til að mæta viðhorfum unglinganna og þörfum samtíðar. Verkefnið hefur vaxið með markvissara samstarfi við Borgarleikhúsið og RÚV.



Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt