STÍLL hönnunarkeppni félagsmiðstöðva
Stíll er hönnunarkeppni félagmiðstöðva sem fram á hverju ári og keppt er í fatahönnun, hárgreiðslu og förðun út frá ákveðnu þema.
Markmið Stíls er að hvetja ungmenni til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika. Vekja jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar og gefa þeim kost á að koma sínum hugmyndum á framfæri utan félagsmiðstöðvanna. Einnig að unga fólkið komist í kynni við fleiri sem hafa áhuga á sama sviði.
Í ár er þemað “Drag” og keppnin fer fram laugardaginn 17. mars í íþróttahúsinu Digranesi.
Við hvetjum ungmenni okkar í Þróttheimum til þess að taka þátt í þessari flottu keppni. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt þurfa að hafa samband við okkur starfsmenn Þróttheima fyrir 24. janúar!