Stofnun ársins 2022

 In Forsíðu frétt, Óflokkað

Frístundamiðstöðin Kringlumýri var tilkynnt í gær að hún væri í fjórða sæti í stofnu ársins í flokki stærstu starfsstaða borgar og bæja.
Þessum árangri er að þakka þeim frábæru stjórnendum og starfsfólki sem starfa inna Kringlumýrar.

Stofnun ársins – borg og bær og Stofnun ársins – sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnun byggir á að mati starfsmanna þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða. Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur stofnana til að huga að mannauðsmálum og auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt