Sumarnámskeið Dalheima – Vika 1
Fyrsta vikan í sumarstarfi Dalheima fór vel af stað.
Fengum frábæra kynningu frá framkvæmdarstjóra Laugardalslaugar, Árna, sem fór með krakkana á bakvið tjöldin. Börnin fengu kynningu á því hvernig laugin virkar, hvað fer fram þegar eitthvað kemur upp á og margt fleira. Fengu að fara upp í stúku, undir laugina og margt fleira. Síðan fengu börnin að koma fram með hugmyndir um sína drauma Laugardalslaug, sem voru alls ekki af verri endanum. Fengu svo auðvitað að fara í sund að kynningu lokinni.
Á föstudeginum var farið í Náttúrugripasafn Kópavogs og leikið sér á ærlsabelgnum.
Recent Posts